Sveriges mest populära poddar

Árið er

Árið er 2002 - fyrri hluti

110 min • 1 november 2023
Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu. Sigur Rós syngur á vonlensku og Mugison fæðist sem söngvari á karaókíbar í Malasíu. Írafársrússíbaninn þýtur áfram, Sálin treður upp með Melabandinu og Urður gengur í Gus Gus. Vandræðaunglingurinn Þórunn Antónía lýkur þriggja ára tónlistarnámi hjá föður sínum, Magnúsi Þór Sigmundssyni. Útrás Leaves fær fljúgandi start, Fídel gefur út plötu og geispar golunni en Land og synir fá Happy Endings. Orri Harðar fellir tár, Brain Police finnur Jenna og Buff finnur glerbrot í vaselíninu. Græni ormurinn skríður út úr bílskúr á Skipaskaga, hárin rísa á höfði Ampopdúettsins en það þarf fólk eins og Rúnar Júl fyrir fólk eins og þig og mig. Meðal viðmælenda í 23. þættinum, þar sem íslenska tónlistarárið 2002 er tekið fyrir, eru Birgitta Haukdal, Vignir Snær Vigfússon, Guðmundur Jónsson, Stefán Hilmarsson, Sigurður Guðmundsson, Guðmundur Kristinn Jónsson, Jón Ólafsson, Örn Elías Guðmundsson, Birgir Hilmarsson, Georg Hólm, Hreimur Örn Heimisson, Magnús Þór Sigmundsson, Þórunn Antonía Magnúsdóttir, Orri Harðarson, Arnar Guðjónsson og Jón Björn Ríkharðsson. Árið er.... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum er á dagskrá á laugardögum á Rás 2 og þættirnir eru endurfluttir á sunnudagskvöldum. Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson. Lagalisti: Írafár - Ég sjálf/Stórir hringir/Írafár - Ég sjálf Sálin hans Jóns míns - Þú fullkomnar mig Sálin & Sinfó - Upplifun/Vatnið Gus Gus - Dance you Down/David Silfurfálkinn - Turn your lights down Rúnar Júlíusson - Gott er að gefa/Það þarf fólk eins og þig Nýdönsk - Fagurt fés/Flugvélar Mugison - Sea Y/Ear/Poke A Pal Ampop - Made For Market/Sociopath Worm Is Green - The Robot Has Got The Blues/Love Will Tear Us Apart Sigur Rós - Lag nr. 1 (Vaka)/Lag nr. 4 (Njósnavélin) Land & synir - Summer/Smile/If Megas - Vertu mér samferða inní draumalandið amma/Ungfrú Álís Þórunn Antonía - Play Me/The Sun Is Shining/Zebra Butterfly Orri Harðarson - Ást/Freisting Leaves - Catch/Race Fídel - Who Gives A Rat/The Great Skua Brain Police - Jacussy Suzy Hljómsveitin ÉG - Geitungarnir mínir Rúnk - Klapparstígur/Atlavík 84 Buff - Gringó/Glerbrot
Kategorier
Förekommer på
00:00 -00:00