Í Rokklandi dagsins er þrennt á dagskrá.
Gulli Reynis – tvíburabróðir Halla Reynis segir frá nýju plötunni sinni þar sem hann syngur lögin hans Halla bróðir síns sem féll fyrir eigin hendi árið 2019. Halli Reynis gaf út 9 stórar plötur meðan hann lifði.
Hljómsveitin Dr. Gunni var að gefa út plötuna – Er ekki bara búið að vera að gaman. Gunnar Lárus, Dr. Gunni sjálfur kemur í heimsókn og ræðir um lagasmíðar, Bítla og Bonobo apa.
En við tökum líka ofan fyrir föllnum meistara – Paul D´ianno lést í vikunni, en hann var söngvari Iron Maiden þegar hljómsveitin sló í gegn á sínum tíma og syngur á fyrstu tveimur plötunum sem mörgum af fyrstu aðdáendum Járnfrúarinnar finnst alltaf bestu plötur þessarar mögnuðu hljómsveitar.