Sveriges mest populära poddar

Rokkland

Jólin á Mars og þegar María mín fór

108 min • 27 december 2015
Allar götur síðan 1997 hefur Rokkland boðið upp á sérstakan jólaþátt og hann er einmitt í dag þetta árið. Í fyrsta þættinum fyrir öllum þessum árm var þetta eki mikið mál, það var eki svo erfitt að safna saman bunka af skemmtilegum og svolítð „öðruvísi“ jólalögum sem ekki högfðu verið spiluð mikið í útvarpið þann desemberinn, en með hverju árinu sem líður verður þetta meira og meira mál - fyrst og fremst vegna þess að starfsfólk Rásar 2 er meðvitaðra um jólamúsíkina sem er til og það sem heyrist í útvarpinu í dag er miklu fjölbreyttara en það var áður. Það er búið að vera mikið af jólamúsík á Rásinni um jólin sem þýðir að þetta er heilmikil áskorun fyrir mig að bjóða upp á eitthvað JÓLA ? þriðja í jólum sem fólk nennir hugsanlega að hlusta á. En ég ætla í Jóla-Rokklandi í dag að bjóða upp á Blind Boys of Alabama, The Flaming Lips ? Wayne Coyne verður líka á línunni og segir frá jólalaginu þeirra; A change at christmas, say it isn´t so. Við heyrum Gene Autry syngja um mömmu sína og jólasveinin, Eddie Cochran og The Holly Twins syngja um Elvis og jólin. Við heyrum lög af nýrri jólaplötu Kylie Minogue, Mary Gauthier um jólin á götunni, John Prine syngur um jólin þegar kærastan yfirgaf hann, Teinar um jólin þegar María mín fór, Willie Nelson syngur um jólin í ræsinu, og Johnny Cash um jesúbarnið, Neil Young og Pegi fyrrum eiginkona hans um jólabjöllurnar í Frakklandi, Chrissie Hynde syngur gamlan jólasálm og Tim Wheeler úr írsku hljómsveitinni Ash syngur um uppvakningajól og jólin á brimbretti. John Travolta og Olivina Newton John taka lagið líka, Lou Rawls og Ramones.
Kategorier
Förekommer på
00:00 -00:00