Arnar og Helgi sem eru Úlfur Úlfur eru gestir Rokklands á sunnudaginn.
Þeir eru frá Sauðarkróki, voru saman í hljómsveitinni Bróðir Svartúlfs semsigraði í Músíktilraunum árið 2009. Bróðir Svartúlfs gaf út eina plötu en liðaðist síðan í sundur. Arnar og Helgi héldu áfram að gera músík, eru í dag tveir eftir og önnur platan þeirra, Tvær plánetur hefur heldur betur slegið í gegn.
Þeir tala um æskuna á Sauðarkróki, um Músíkítilraunir, Tom Waits, Eminem, Ace of Base og þráhyggjuna.
það er hiti í rappsenunni í dag, líklega meiri en verið hefur í næstum 15 ár.
Úlfur Úlfur kemur fram á Airwaves og ég ætla líka að kynna til sögunnar nokkur af erlendu nöfnunum sem koma fram á Airwaves í ár.
Þátturinn hefst svo á umfjöllun um hár-metal-plötunur.