Sveriges mest populära poddar

Víðsjá

Bjarni Frímann Bjarnason, Arðsemi menningar, Eltum veðrið

53 min • 7 oktober 2024
Við hittum Bjarna Frímann Bjarnason hljómsveitarstjóra og píanóleikara á bílaverkstæði við Smiðjuveg í þætti dagsins. Bjarni mun halda þar tónleika um næstu helgi sem eru hluti af tónlistarhátíðinni State of the Art sem hefst á morgun og stendur til 12.október. Við munum einnig kynna okkur skýrslu sem heitir Framlag menningar og skapandi greina til verðmætasköpunar á Íslandi. Hún er unnin fyrir Menningar- og viðskiptaráðuneytið af Ágústi Ólafi Ágústssyni hagfræðingi. Ágúst Ólafur og Erla Rún Guðmundsdóttir, forstöðukona Rannsóknarseturs Skapandi greina, verða gestir okkar í dag. Nína Hjálmarsdóttir verður einnig með okkur í þætti dagsins, en hún fór að sjá Eltum veðrið, sem frumsýnt var í þjóðleikhúsinu á föstudag.
Kategorier
Förekommer på
00:00 -00:00