Sveriges mest populära poddar

Víðsjá

Cauda Collective og Eldjárn, Blængur, Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar

50 min • 8 februari 2024
Við lítum í heimsókn í vinnustofu úti á Granda, þar sem tónlistamennirnir og bræðurnir Halldór og Úlfur Eldjárn taka á móti okkur, en ný tónverk eftir þá bræður verða frumflutt af kammerhópnum Cauda Collective í Hörpu næstkomandi sunnudag. Í strengjakvartettinum Flug/ Vindur sækir Halldór innblástur í teikningar af vindáttum og flugvöllum en í verkinu Mirari veltir Úlfur fyrir sér hæfileika okkar til að komast yfir erfiðleika og sjá ljósið í myrkrinu. Á tónleikunum mun Cauda Collective einnig flytja verkið Fratres eftir Arvo Pert. Trausti Ólafsson verður einnig með okkur í þættinum og að þessu sinni rýnir hann í leikverkið Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar sem sýnt er um þessar mundir í Borgarleikhúsinu. En við byrjum á íslensku bókmenntaverðlaununum. Það vakti talsverða athygli þegar verðlaunin voru veitt síðastliðin miðvikudag að nýr verðlaunagripur hvíldi í höndum verðlaunahafa. Gripurinn nefnist Blængur og er bronshrafn og tekur hann við af verðlaunagrip Jóns Snorra Sigurðssonar, op­inn­ar bók­ar á granít­stöpli. Höfundurinn, myndhöggvarinn Matthías Rúnar Sigurðsson, er gestur okkar í dag.
Kategorier
Förekommer på
00:00 -00:00