Sveriges mest populära poddar

Víðsjá

Kristófer Rodriques Svönuson / svipmynd

50 min • 12 februari 2025
Kristofer Rodríquez Svönuson, slagverksleikari og tónskáld, hefur vakið athygli fyrir þá Suður-Amerísku strauma sem hann hefur blásið í íslensku tónlistarsenuna, bæði sem trommari í félagi við aðra, en líka með sinni eigin hljómplötu, Primo, sem var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2020. Hann nam slagverksleik í FÍH og hélt svo í framhaldsnám til Kúbu og Kólumbíu. Á vesturströnd Kólumbíu lærði hann á conga trommu, sem þar er álitin heilög og mikilvægt tæki til að færa heiminum gleði, en hann lærði þar einnig nýtt viðhorf til tónlistarsköpunar. Eftir nám í tónlist lærði Kristófer hjúkrunarfræði, sem honum finnst vera nátengd tónlistinni. Kristófer er fæddur árið 1988 í Kópavogi og er hann sem stendur bæjarlistamaður Kópavogs. Og hann er gestur okkar í Svipmynd Víðsjár þessa vikuna.
Kategorier
Förekommer på
00:00 -00:00