Sveriges mest populära poddar

Víðsjá

Snorri Sigfús Birgisson, Pull í Rýmd, Duna/rýni

53 min • 4 februari 2025
Snorri Sigfús Birgisson verður einn af gestum Víðsjár í dag. Við ræðum verkið Fantasy and Clockwork sem Snorri Sigfús samdi og tileinkaði vini sínum, Hreini Friðfinnssyni myndlistarmanni. Hreinn varð áttræður í febrúar 2023 og skipulögðu vinir hans óvænta veislu af því tilefni, þar sem Snorri Sigfús frumflutti verkið. Við heyrum af veislunni, tilurð verksins og innblæstri, en þeir Snorri Sigfús og Hreinn kynntust á námsárunum í Amsterdam. Við heyrum einnig rýni Soffíu Auðar Birgisdóttur í Dunu, sögu af kvikmyndagerðakonu, eftir þær Kristínu Svövu Tómasdóttur og Guðrúnu Elsu Bragadóttur, og við hittum Völu Sigþrúðar Jónsdóttur á sýningu hennar Pull, í sýningarsalnum Rýmd í Breiðholti.
Kategorier
Förekommer på
00:00 -00:00