Sveriges mest populära poddar

Víðsjá

Svipmynd af vinnustofu í Varanasi

54 min • 19 februari 2025
Síðustu ár hefur hópur íslenskra listamanna heimsótt Varanasi á Indlandi og dvalið þar á vinnustofum Kriti gallerísins, sótt sér næringu og innblástur. Afrakstur dvalarinnar má sjá á sýningu sem nú stendur yfir í Listasafni Árnesinga og hefur yfirskriftina Meðal guða og manna. Um sýningarstjórn sér Pari Stave, en hópurinn telur sex mótaða og margreynda íslenska listamenn, þau Margréti H. Blöndal, Guðjón Ketilsson, Eygló Harðardóttur, Sólveigu Aðalsteinsdóttur, Sigurð Árna Sigurðsson og Einar Fal Ingólfsson, sem er forsprakkinn að þessu viðamikla verkefni. Það finnast varla ólíkari lönd og menningarheimar en Ísland og Indland og íslensku listamennirnir sem héldu til Varanasi fetuðu í fótspor margra annarra listamanna og hugsuða sem hafa farið þangað í leit að áhrifum og upplifunum. Varanasi er borg öfga, lita og fjölskrúðugs mannlífs, þar sem dauðinn er alltaf nálægur við hið helga Gangesfljót. Við heyrum af upplifunum listamannnanna sex, ásamt stofnanda gallerísins og vinnustofunnar, Navneet Raman. Svipmynd dagsins er af vinnustofu í Varanasi. Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Kategorier
Förekommer på
00:00 -00:00