Sveriges mest populära poddar

Víðsjá

Syngjandi stjórnandi, arkitektúr í Afríku og Á bláþræði

54 min • 16 januari 2024
Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir hefur vakið umtalsverða athygli undanfarin misseri. Ekki aðeins fyrir fiðluleik og söng, heldur einnig fyrir hljómsveitarstjórn, og kannski ekki síst fyrir að blanda þessu tvennu saman, söng og hljómsveitarstjórn. Við ræðum við þessa ungu tónlistarkonu í þætti dagsins. Einnig fáum við pistil frá Hildigunni Sverrisdóttur, arkitekt, sem að þessu sinni fjallar um það sem efst er á baugi í afrískum arkitektúr. Og síðan stingum við einnig inn nefinu á sýningu Herdísar Hlíf Þorvaldsdóttur, Á bláþræði, í Portfolio Galleríi á Hverfisgötu.
Kategorier
Förekommer på
00:00 -00:00